Almennt
Með kaupum á áskrift, dagspassa eða vikupassa hjá Sköpunarsetrinu samþykkir viðskiptavinur eftirfarandi skilmála.
Aldurstakmark
Lágmarksaldur í Sköpunarsetrið er 16 ár, en síðar munum við bæta við sér tímum fyrir börn undir 16 ára.
Pantanir og verð
Sköpunarsetrið áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, meðal annars vegna rangra verðupplýsinga. Jafnframt áskilur Sköpunarsetrið sér rétt til að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á tilteknar vörur eða þjónustu án fyrirvara. Sköpunarsetrið áskilur sér einnig rétt til að staðfesta pantanir símleiðis ef þörf krefur.
Áskrift
Áskrift er ótímabundin og endurnýjast sjálfkrafa mánaðarlega nema henni sé sagt upp. Áskrift miðast við einn einstakling og er með öllu óheimilt að deila áskrift, lána aðgang eða veita öðrum aðgang að aðstöðu Sköpunarsetursins undir eigin nafni.
Áskriftartímabil er einn mánuður í senn og gildir frá 5. degi mánaðar til 4. dags næsta mánaðar.
Áskriftargjald er innheimt 5. hvers mánaðar í gegnum greiðsluhlekk sem sendur er með SMS.
Hægt er að segja upp áskrift hvenær sem er. Uppsagnarfrestur er einn mánuður og tekur uppsögn því gildi að loknu næsta heila áskriftartímabili eftir að uppsögn berst. Áskrift er innheimt á uppsagnarfresti samkvæmt gildandi verðskrá.
Vikupassi
Vikupassi veitir aðgang í sjö (7) daga samtals og er persónubundinn. Vikupassi er ekki bundinn við ákveðinn dag eða samfellda daga og má nýta hvenær sem er innan eins (1) mánaðar frá kaupdegi.
Með öllu er óheimilt að deila vikupassa, lána aðgang eða veita öðrum aðgang að aðstöðu Sköpunarsetursins undir eigin nafni.
Dagspassi
Dagspassi veitir aðgang í einn (1) dag samtals og er persónubundinn. Dagspassi er ekki bundinn við ákveðinn dag og má nýta hvenær sem er innan eins (1) mánaðar frá kaupdegi.
Með öllu er óheimilt að deila dagspassa, lána aðgang eða veita öðrum aðgang að aðstöðu Sköpunarsetursins undir eigin nafni.
Reglur
Viðskiptavinum ber skylda til að ganga vel um aðstöðu Sköpunarsetursins og eigur staðarins. Allur búnaður, þar á meðal: tæki, borð, stólar, áhöld og annar búnaður, er í eigu Sköpunarsetursins og er með öllu óheimilt að fjarlægja af staðnum.
Brot á þessum reglum, þar á meðal þjófnaður eða skemmdarverk, varða við lög og er allur þjófnaður tilkynntur til lögreglu. Viðskiptavinum ber að sýna virðingu gagnvart staðnum, búnaði og öðrum viðskiptavinum. Brot á skilmálum þessum getur leitt til tafarlauss brottreksturs án endurgreiðslu.
