Hvernig virkar sköpunarsetrið?
Sköpunarsetrið er opið skapandi rými fyrir list og sköpun. Á opnunartíma eru alltaf vinnustofur í gangi og samhliða því er frjáls sköpun einnig í boði fyrir þá sem vilja vinna að eigin verkefnum.
Meginmarkmið Sköpunarsetursins er að efla og styðja list og sköpun í samfélaginu og skapa öruggt og hvetjandi umhverfi fyrir skapandi einstaklinga.
Fyrir hverja er Sköpunarsetrið?
Sköpunarsetrið er fyrir alla 16 ára og eldri. Stefnt er að því að bjóða síðar upp á sértíma eða viðburði fyrir börn undir 16 ára aldri.
Hvað er hægt að gera á staðnum?
Í Sköpunarsetrinu er hægt að stunda fjölbreytta list og handavinnu. Þar á meðal eru:
- Textíllist
- Myndlist
- Leirlist
- Skúlptúr
- Skartgripagerð
og fleira tengt skapandi vinnu.
Hvaða tæki og tól eru í boði?
Á staðnum er aðgangur að fjölbreyttum tækjum og búnaði, þar á meðal:
- Borðofni
- Borðum og stólum
- Cricut Maker 4 (vinyl skeri)
- Hitabyssum
- Hitapressu
- Límbyssur
- Málningatrönum
- Resin Curing Machine
- Saumavélum
- Vefstólum
Auk þess er mikið úrval minni handverkfæra og handbóka til afnota.
*Við erum sífellt að bæta við nýjum tækjum og búnaði eftir því sem starfsemin þróast.
Er efniviður á staðnum?
Efniviður innifalinn í vinnustofum og getur verið innifalinn í námskeiðum. Á staðnum eru einnig vatnslitir og málning sem allir gestir geta nýtt sér að kostnaðarlausu.
*Unnið er að því að bjóða síðar upp á valdar vörur til sölu og einnig bjóða upp á notað og nýtt.
Hver er opnunartíminn?
Opnunartími Sköpunarsetursins er breytilegur. Að jafnaði er opið fjórum sinnum í viku í fjóra klukkustundir í senn.
Opnunartímar hvers mánaðar eru birtir fyrirfram, með fyrirvara um breytingar.
Hvernig fæ ég aðgang að staðnum?
Það er einfalt! Þú velur þann aðgang sem hentar þér: áskrift, vikupassa eða dagspassa. Skráir þig og færð aðgang að Sköpunarsetrinu samkvæmt gildandi skilmálum.
Hvað kostar að koma í Sköpunarsetrið?
Verð fer eftir því hvort valin er áskrift, dagspassi eða vikupassi. Nánari upplýsingar um verð og verðskrá má finna hér.
Er hægt að geyma ókláruð verk hjá ykkur?
Við erum með hillur þar sem hægt er að geyma ókláruð verk. Hver og einn ber þó ábyrgð á sínum verkum og eignum sem geymdar eru á staðnum.
Bjóðið þið upp á námskeið?
Já, stefnt er að því að halda reglulega námskeið og viðburði tengda list og sköpun. Upplýsingar um komandi námskeið verða auglýstar sérstaklega.
Ef þú hefur frekari spurningar sendur okkur línu á hafasamband@skopunarsetrid.is
